Sól sól skín á mig……….

Vá hvað það er æði að það sé svona veður síðustu dagana áður en við förum í sólina. Við erum búin að hafa það rosalega gott og við Eydís Ósk vorum sko duglegar í sundlauginni í síðustu viku - enda komnar með bikinífar :-) Bjarki Már er nú kominn í sumarfrí og við höfum það gott hérna heima í dag - úti á palli og í fótbolta á grasinu og ég er ekkert að grínast þegar ég segi að hann sé betri en ég í fótbolta :-)

Nú fer að líða að því að við verðum í 30 gráðum og sól á ströndinni og á sundlaugarbakkanum með eitthvað gott að drekka í annarri og sólarolíuna í hinni - hver öfundar okkur ekki???

Það er hálf skrítið að hafa ekki hitt Evu systir  Sváfni síðustu vikur og munum ekki sjá þau fyrr en í ágúst því þau eru búin að vera á ferðalagi um Evrópu og koma ekki fyrr en í júlí og þá erum við náttla ennþá úti :-)

Næsta blogg mun eflaust koma frá útlöndum og hugsanlega hendi ég inn myndum fyrir ömmurnar, afana og ykkur hin.  

Bið að heilsa í bili - sólarkveðja María

ORANGE

Eins og fram kom í síðasta bloggi þá áttum við “afmæli” á föstudaginn - 13 ára sambandsafmæli (heheeh getur maður sagt það) Við komum krökkunum í pössun og fórum út að borða. Fyrir valinu varð veitingastaðurinn Orange en það er staður sem Tóti vinur okkar á og er hann staðsettur á Geirsgötunni þar sem veitingastaðurinn Tveir fiskar voru áður. Ég verð nú að segja að hann Tóti er að standa sig prýðilega, maturinn og umgjörðin öll var alveg frábær og ekki skemmdi fyrir að hann bauð okkur upp á kampavín í tilefni dagsins. Matseðillinn er ótrúlega spennandi og eftir smá umhugsunartíma yfir matseðlinum ákváðum við að fá okkur “rétt” sem heitir Let’s Go Crazy - þá fáum við eitthvað óvænt sem kokkurinn mælir með - og eftir á sagði Tóti okkur það að ef við hefðum pantað annað þá hefði hann rifið þá pöntun og gert þetta eftir sínu höfði hehehehe hann ætlaði semsagt að leyfa okkur að prófa og smakka sem mest og best.

Ég er ekkert að grínast ………. maturinn byrjaði að berast á borð - gellur, humarsúpa, áll, túnfiskur, andalifur, Klaustursbleikja, Mjólkurkálfur og súkkulaðikaka - þvílíkar kræsingar - maðurinn er náttla snillingur. Og það sem er svo frábært er að þeir leika sér svo með framreiðsluna á þessu - humarsúpan mín kom t.d í mjólkurfernu - hversu fyndið er það hehehe

Tóti !!!! Innilegar þakkir fyrir okkur - þetta var snilld og við komum pottþétt aftur.

 Flottur strákurinn :-)

Luv M

13 ár - hvorki meira né minna……

OMG - hver man ekki eftir pizzasendlinum á Pizzabæ sem keyrði um á hvítri Mazda 323 með númerinu P-181??!?!?! Með græjurnar í botni!!!! Hahahaha ég ætlaði sko að ná mér í hann hehe - og eins og mér einni er lagið þá fæ ég það sem ég vil og í dag eru liðin 13 ár. Svakalega líður tíminn, 13 ár er ekkert smá mikið, miðað við að við erum nú bara 31 árs nýgift og allt ;-)

Eina sem er að í dag er föstudagurinn þrettándi og eins og flestir vita boðar það ekki gott - en eins og gefur að skilja hefur 13.júní nú nokkrum sinnum lent á föstudegi og það hefur ekki truflað okkur hingað til.

Annars lítið að frétta - rólegheit um helgina, útilega næstu helgi og svo Spánarströnd. Gæti ekki verið mikið betra.

kv.María

Nýfædd snúlla og afmæli

Hello people

Ég vil byrja á því að óska henni Magneu minni til hamingju með daginn en skvísan er 31 árs í dag. Einnig vil ég óska vinum okkar, þeim Gotta og Þuru innilega til hamingju með frumburðinn, en hjá þeim fæddist stúlka þann 8.júní sl. Ég er búin að fá sendar myndir af snúllunni og hún er sko algjört bjútí.

Nú fer að styttast í Spánarferð, í dag eru 2 vikur í að við fljúgum út til að baða okkur í sólinni og liggja með tærnar upp í loft. Ágúst verður með okkur í 3 vikur en ég og krakkarnir verðum í 6 vikur :-) Ég var nú samt eitthvað farin að pæla hvort að ég ætti að stytta það eitthvað og eyða meiri tíma hér innanlands en ég ætla að láta það bara ráðast þegar nær dregur :-)

Eva syz og Sváfnir eru nú á flakki um Evrópu - eru búin með París þar sem þau nutu lífsins út í ystu æsar og fóru svo til Zurich þar sem þau tóku þátt í EM gleðinni - nú eru þau víst komin til Mílanó og ætla eyða þar smá tíma áður en þau kíkja til Feneyja - svo halda þau bara áfram um Evrópu og koma ekki heim fyrr en í byrjun júlí- 4 vikna gleði hjá þeim.

Annast er mest lítið að frétta héðan - ég er enn eitthvað hálf óskipulögð eftir brúðkaupið, er nú búin að koma flestu fyrir á rétta staði en á eftir að gera ýmislegt sem ég verð að drífa í - kem mér bara ekki af stað - svíf bara um á einhverju skýji hehehe

Bið að heilsa ykkur í bili og vona að ég sjái ykkur nú flest áður en ég legg land undir fót

-later-

Karlmenn hehehe

Sverrir var eitt sinn á gangi á Laugaveginum þegar hann sá Berg vin sinn koma akandi á splunkunýjum jeppa. Bergur stoppaði að sjálfsögðu hjá honum og veifaði glottandi til hans. Sverrir gekk upp að bílnum. “Hvar í ósköpunum fékkstu eiginlega þennan jeppa?” spurði hann hissa. “Hún Stína gaf mér hann” svaraði Bergur glaðbeittur. “Gaf hún þér nýjan jeppa?” át Sverrir upp eftir honum. “Hvers vegna í ósköpunum?” “Ég skal bara segja þér hvað gerðist,”sagði Bergur. “Við vorum í bíltúr um daginn, einhvers staðar uppi sveit . Allt í einu ók Stína út af veginum, setti jeppan í fjórhjóladrifið og keyrði eitthvað langt út í móa. Þegar hún var búinn að skröltast yfir hóla og hæðir stoppaði hún bílinn, fór út og klæddi sig úr öllum fötunum, lagðist á jörðina og sagði: “Beggi minn taktu það sem þú vilt!” “Svo ég tók jeppann.” “Þú ert bráðsnjall,” sagði Sverrir og kinkaði kolli. “Fötin hefðu hvort sem er aldrei passað á þig.

Enn á bleiku skýi…

Ó mæ god…..við erum sko ennþá á bleiku skýi eftir þennan yndislega brúðkaupsdag sem við áttum síðasta laugardag. Mikið var þetta gaman og ég vona að fólk hafi skemmt sér jafn vel og við. Þessi vika hefur farið í það að ná sér niður eftir þetta allt saman. Sunnudeginum eyddum við bara í afslöppun og opnuðum allar fallegu gjafirnar sem við fengum í tilefni dagsins - innilegar þakkir fyrir okkur - þvílíkt og annað eins gjafamagn hef ég aldrei séð. Ég er rétt að klára að koma þessu öllu fyrir, taka gömlu ósamstæðu glösin úr skápunum og setja nýju inn, bæta í matarstellið og koma fallegu hnífapörunum fyrir - nú get ég ekki beðið eftir að halda matarboð, enda eigum við núna rosalega fallegan borðbúnað og þvílíkt magn af víni eftir partýið :-)

Eins og flestir hafa séð er ég búin að setja myndirnar frá Guðna á netið og ég get sko setið og skoðað þær aftur og aftur. Nú bíð ég spennt eftir fleiri myndum og svo er næst á dagskrá að framkalla einnota vélarnar - það verður nú eitthvað skrautlegt hehehehe.

En elskurnar mínar, enn og aftur vil ég þakka fyrir okkur - það var æði að sjá ykkur öll og þið gerðuð daginn ógleymanlegan.

Luv- FRÚ María

Myndir - myndir - myndir

Ég nenni ekki að setja allar myndirnar inn hérna svo ég gef ykkur linkana bara í staðinn. Ég er semsagt komin með myndir sem Guðni vinur okkar tók í brúðkaupinu, aðeins um 600 myndir eða svo :-) Endilega gefið mér eintak af myndunum ykkar ef þið voruð með vél á laugardaginn.

http://s224.photobucket.com/albums/dd80/myndirnarminar/brudkaup/  - hér er kirkjan

http://s224.photobucket.com/albums/dd80/myndirnarminar/brudkaup/brudkaupsveisla/  - hér er veislan

kv.Frúin

Frú

Ég er orðin frú - nananabúbú

Dagurinn í gær var æði - takk fyrir komuna öllsömul :-)

kveðja FRÚ María

Gæs

Hér koma nokkrar myndir af gæsuninni en ég skrifa færslu og segi frá öllu seinna.

Tíminn líður hratt……….

Það styttist ansi mikið í að ég verði frú. Karen vinkona gifti sig á laugardaginn og einhvernveginn var það alltaf…….”fyrst er brúðkaupið hjá Karen og svo okkar” Nú er hennar búið og þá styttist í mitt hehehe. Dagurinn var æðislegur á laugardaginn - Karen og Gunnar voru gullfalleg og veislan þeirra æðisleg. Ég þakka enn og aftur fyrir mig.

Síðustu daga hef ég verið að klára ýmislegt smálegt…keypti skóna mína og skó á Eydísi Ósk. Svo hef ég verið að pæla í sætamerkingum og skoða hvað er í boði. Nú er runnin út tíminn til að afboða sig og það hafa ansi fáir látið vita að þeir komi ekki svo þetta stefnir í heljarinnar veislu - júhú :-)

Eydís Ósk er búin að vera í dansi  í World Class frá áramótum og var að sýna á nemendasýningu á mánudagskvöldið. Vá!! Ég hef sjaldan verið svona stolt af henni, þarna sýndi hún dans með hópnum sínum og þær voru svo flottar og stóðu sig svo vel að ég var að rifna úr stolti. Þær dönsuðu fyrir fullu Borgarleikhúsi eins og þær hafi aldrei gert annað. Við tókum fullt af myndum og munu þær sjást á síðum barnanna innan skamms. www.eydisosk.barnaland.is og www.bjarkimarminn.barnaland.is -ef þið vitið ekki lykilorðið þá sendiði mér bara línu.

Við fórum í bæinn í vikunni og kláruðum að gera brúðargjafalistana - mér fannst þetta hálf óþægilegt fyrst en svo alveg ótrúlega gaman hehe. Við gerðum lista í Líf og list í Smáralind og Egg á Smáratorgi. Næstu dagar og vikur fara svo í að undirbúa stóra daginn - ótrúlega skemmtilegt og spennandi.

Later - María